Ævar vísindamaður er einn best þekkti og fjölhæfasti vísindamaður Íslands. Hann hefur einkum einbeitt sér að rannsóknum sem aðrir vísindamenn hafa ekki treyst sér til að sinna.
Ævar vísindamaður hefur stundað rannsóknir á ystu jöðrum ýmissa fræðasviða, þar á meðal stjarneðlisfræði, líffræði, efnafræði, fornleif...
Í aprílmánuði 2018 var birt 51 nýtt svar á Vísindavefnum. Að auki var fjölmörgum fyrirspurnum svarað með því að vísa lesendum á efni sem til er og sumum spurningum var svarað með tölvupósti og símtölum.
Vísindavefurinn og Vísindafélag Íslendinga standa að svokölluðu dagatali íslenskra vísindamanna árið 2018. Hv...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona: Hvenær varð Jörðin til og hvaða afmæli Jarðarinnar var þetta sem Ævar vísindamaður talaði um í þættinum sínum?
Jörðin varð til fyrir um það bil 4.500 milljónum ára en það er ekki hægt að tilgreina aldur hennar mikið nákvæmar en það. Jörðin á því engan afmælisdag, ekki fre...
Metaðsókn var að Vísindavef Háskóla Íslands árið 2018. Samkvæmt gögnum frá Modernus sem rekur samræmda vefmælingu á Íslandi, voru notendur Vísindavefsins 775 þúsund árið 2018 og flettu þeir síðum vefsins rúmlega þremur milljón sinnum. Svörin á Vísindavefnum eru orðin rúmlega 12.000 og flettingarnar samsvara því að...
Náttúrufræðingar hafa nokkrum sinnum farið til Flateyjar og kannað þar fuglalíf. Til að mynda fór Ævar Petersen dýrafræðingar þangað árið 1977 og taldi meðal annars fugla. Niðurstöðurnar úr rannsókn Ævars birtust í grein árið 1979.
Loftmynd af Flatey á Breiðafirði.
Sumarið 1977 fundu Ævar og félagar 21 verpandi ...
Vísindavefur HÍ og RÚV stofna í dag til samstarfs um vísindamann vikunnar. Næstu tvo mánuði verða vikuleg viðtöl við einn íslenskan vísindamann, rannsóknir hans og annað fróðlegt efni, á dagskrá á mánudögum í þættinum Samfélagið á Rás 1.
Vísindafólkið er valið úr dagatali íslenskra vísindamanna sem Vísindaféla...
Guðmundur Oddsson er dósent við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknir hans snúa að stéttaskiptingu, frávikshegðun og félagslegu taumhaldi.
Doktorsrannsókn Guðmundar skoðar breytingar á hugmyndum Íslendinga um stéttaskiptingu samfara örum þjóðfélagsbreytingum. Rannsóknin byggir á greiningu...
Samkvæmt vefmælingu Modernusar voru tíu vinsælustu svör marsmánaðar á Vísindavefnum árið 2013 þessi hér:
Hver er yngsta þjóð í heimi?
Þarf maður að vera snillingur til að verða vísindamaður eða -kona?
Hefur geislun frá fartölvum sem menn sitja oft með í kjöltunni einhver skaðleg áhrif á líkamann, til dæmis á ...
Í mörgum löndum eru héruð eða landsvæði sem sérstaklega eru notuð sem bakgrunnur fyrir ýmiss konar skopsögur. Sem dæmi má nefna Mols á Jótlandi sem er heimkynni Molbúa (d. Molboer) og af þeim eru margar sögur af þessum toga. „Molbúi“ er líka nokkuð algengt orð í íslensku nútímamáli samkvæmt leitarvélum á Veraldarv...
Vísindavefur HÍ og RÚV eru í samstarfi um vísindamann vikunnar. Í þættinum Samfélagið á Rás 1 eru vikuleg viðtöl við einn íslenskan vísindamann, rannsóknir hans og annað fróðlegt efni.
Vísindafólkið er valið úr dagatali íslenskra vísindamanna sem Vísindafélag Íslands og Vísindavefurinn settu á laggirnar árið 20...
Fuglamerkingar hófust hér á landi árið 1921 fyrir tilstilli danska fuglafræðingsins Peter Skovgaard. Þrátt fyrir að hafa verið upphafsmaður fuglamerkinga á Íslandi kom Skovgaard aldrei til Íslands heldur sendi hann merkin hingað og fékk góðan hóp heimamanna til þess að sjá um merkingarnar.
Árið 1932 hóf Hið ísl...
Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:Hafa alltaf verið svona margir máfar við tjörnina? Hvernig komast andarungarnir á legg þar?Landnám sílamáfa
Talið er að sílamáfar Larus fuscus graellsii (1. mynd) hafi fyrst orpið hér á landi á árunum upp úr 1920 en varp við sunnanverðan Faxaflóa hófst ekki fyrr en upp úr 1...
Í stuttu máli er svarið nei. Skoðum augnablik forsendur þess svars:
Fyrst þarf að fallast á einhvers konar skilgreiningar á orðunum „snillingur“ og „vísindamaður“. Hvort manneskja telst vísindamaður eða ekki er misjafnt eftir því hver er spurður. Flestir teldu raunvísindamenn svo sem eðlisfræðinga, efnafræðinga...
Geirfuglinn (Pinguinus impennis) var ákaflega algengur á Norður-Atlantshafi fyrr á öldum, meðal annars undan ströndum Íslands, Færeyja og Grænlands, á nyrstu eyjum Bretlandseyja og við Noreg og Kanada. Talið er að geirfuglar hafi verið margar milljónir áður en menn fóru að veiða þá í stórum stíl, en ekki er þó a...
Hraundrýli – hornito á máli eldfjallafræðinnar – eru nokkurs konar strompar eða strýtur í kringum göt í þaki hraunrása. Hraundrýli myndast við það að lofttegundir, sem losna úr bráðinni, streyma út um gatið með miklum hraða og bera með sér hraunflyksur sem límast í kringum loftrásina.
Hraundrýli hjá Kröflu, til ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!